The Dybdahl
Syringa vulgaris - tvær stærðir
Blóma veggspjald - tvær stærðir
The Dybdahl Co. hefur í nær áratug ferðast um hinn sjónræna heim sjaldgæfra bóka sem þau hafa uppgötvað á uppboðum, í söfnum, bókasöfnum og skjalasöfnum og fundið þar myndir sem þau endurgera í sínum fallegu veggspjöldum.
Þessar framúrskarandi blómateikningar eru eftir Pierre-Joseph Redouté, listamann sem fæddist í Belgíu árið 1759 og lést í París árið 1840.
Hann var þekktur fyrir að mála einstaklega viðkvæm og fínleg blóm – sérstaklega rósir, sem eru taldar með hans bestu verkum. Hann var svo vinsæll að franska drottningin, Marie-Antoinette, bað hann um að starfa sem hirðlistamaður í hennar þjónustu.
Redouté teiknaði bæði kunnug blóm og plöntur og einnig tegundir hvaðanæva úr heiminum, allt frá Suður-Afríku til Ástralíu. Þegar hann gat vann hann beint eftir lifandi blómum, sem gaf myndunum ferskan blæ.
Veggspjöldin eru prentuð á hágæða mattan Hahnemühle pappír með japönsku skjalasafnsbleki í prentsmiðju fyrirtækisins rétt utan við Kaupmannahöfn.
Couldn't load pickup availability
Heimsending
Við sendum um land allt með Íslandspósti. Sendingarkostnaður fellur niður þegar pantað er yfir 20.000 kr.
Hægt er að sækja pantanir í verslun okkar í Neskaupstað.
Skilaréttur
Skilafrestur er 14 dagar. Vörunni fæst einungis skilað gegn framvísun kvittunar eða pöntunarnúmers.
Nánari upplýsingar um vöruskil má finna í skilmálum.
Láta mig vita þegar vara kemur
Syringa vulgaris - tvær stærðir - 15 x 21 cm