Skilmálar
Upplýsingar
Björt verslun
Eigandi: Birta Sæmundsdóttir
VSK: 150652
Kt. 081087-2889
Reikningsnr. 0123-26-071463
Hafnarbraut 3
740 Neskaupstað
Símanr: 477-1850
Skilmálar og skilyrði
1. Almenn ákvæði
Þessir skilmálar gilda um allar pantanir og viðskipti í netverslun okkar. Með því að leggja inn pöntun samþykkir þú þessa skilmála.
2. Greiðslur
Hægt er að greiða með kredit- og debetkortum, Netgíró eða með millifærslu. Allar greiðslur eru í íslenskum krónum (ISK). Kortagreiðslur fara fram í gegnum örugga greiðslugátt Teya.
Óski kaupandi eftir því að greiða með millifærslu skal leggja inn á reikning Birtu Sæmundsdóttur innan 24 klst. frá kaupum og senda kvittun úr heimabanka á netverslun@bjortverslun.is. Berist greiðsla ekki innan þess tíma er pöntunin ógild. Reikningsnúmer er 0123-26-071463, kt. 081087-2889.
3. Afhending og sendingarkostnaður
Pantanir eru afgreiddar innan 1-3 virkra daga eftir að greiðsla berst. Sé varan ekki til verður haft samband við kaupanda og tilkynnt um áætlaðan afhendingartíma vörunnar eða varan endurgreidd ef þess er óskað. Sendingarkostnaður bætist við í lok kaupferlis og er sýnileguráður en greiðsla fer fram. Sendingarkostnaður fellur niður ef verslað er fyrir 20.000 kr. eða meira.
Pantanir eru sendar með Íslandspósti. Einnig er hægt að sækja pantanir í verslunina við Hafnarbraut 3, 740 Neskaupstað.
4. Skilafrestur og endurgreiðslur
Viðskiptavinir hafa 14 daga til að skila vöru samkvæmt neytendakaupum. Varan þarf að vera ónotuð og henni skilað í góðu lagi í upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með. Endurgreiðsla fer fram eftir að varan hefur borist og verið skoðuð. Hægt er að skipta í aðra vöru, fá inneignarnótu eða fá vöruna endurgreidda með sama máta og greitt var fyrir hana. Útsöluvörum fæst hvorki skilað né skipt. Sendingarkostnaður er ekki endurgreiddur nema um gallaða vöru sé að ræða.
5. Gölluð vara
Ef vara reynist gölluð skal hafa samband við okkur sem fyrst svo hægt sé að sannreyna gallann. Tilkynningarfrestur kaupanda vegna galla í vöru er tvö ár. Komi upp galli í vöru er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn, viðgerð eða endurgreiðsla, eftir samkomulagi.Vinsamlegast sendið okkur tölvupóst á bjortverslun@bjortverslun.is með upplýsingum um galla vörunnar.
6. Verð og fyrirvari
Öll verð eru birt með fyrirvara um prentvillur og rangar upplýsingar. Björt verslun áskilur sér rétt til að breyta verði án fyrirvara og hafna eða afturkalla pöntun ef rangt verð hefur verið gefið upp. Ef slík villa kemur upp verður haft samband við viðskiptavin og þeim boðin endurgreiðsla eða að breyta pöntun.
7. Persónuvernd og öryggi
Við virðum persónuvernd og geymum aðeins þær upplýsingar sem nauðsynlegar eru til að afgreiða pöntun. Upplýsingar verða aldrei afhentar þriðja aðila nema samkvæmt lagaskyldu.Öll viðkvæm kortaupplýsingavinnsla fer í gegnum öruggar greiðslugáttir og eru ekki geymdar hjá versluninni.
8. Lög og varnarþing
Skilmálar þessir falla undir íslensk lög. Rísi mál vegna þeirra skal reka það fyrir Héraðsdómi Austurlands.