Boyhood
Playmo karl - lítill
Er hann riddari? Geimfari? Kappakstursmaður? Playmobil-karlinn hefur verið allt sem ímyndunaraflið leyfir síðan á áttunda áratugnum og flestir eiga góða minningu um hann.
Boyhood hefur endurskapað hann úr gegnheilli, FSC-vottaðri eik, nákvæmlega eins og við munum eftir honum, með hreyfanlegum handleggjum og höfði. Litla stærðin (small) fer vel á hillu, skrifborði eða í gluggakistu. Opinber Playmobil-samstarfsvara.
Efni: FSC-vottuð hvíteik
Stærð: H15,5 × B8,6 × L5 cm
Um Boyhood
Boyhood var stofnað í Árósum árið 2016 af hönnuðinum Jakob Burgsø. Hann ólst upp á verkstæði föður síns og vildi skapa hluti sem vekja bros og góðar æskuminningar. Allir gripirnir eru handgerðir úr gegnheilum við.
Gott að vita:
- Þar sem gripurinn er úr náttúrulegum við geta áferð og litur verið örlítið breytileg. Hver gripur er því einstakur.
- Forðastu beint sólarljós og hita, t.d. ofna, þar sem viðurinn getur upplitast og þornað.
- Þetta er hönnunargripur en ekki leikfang. Smáhlutir geta valdið köfnunarhættu - geymið þar sem ung börn ná ekki til.
Couldn't load pickup availability
Heimsending
Við sendum um land allt með Íslandspósti. Sendingarkostnaður fellur niður þegar pantað er yfir 20.000 kr.
Hægt er að sækja pantanir í verslun okkar í Neskaupstað.
Skilaréttur
Skilafrestur er 14 dagar. Vörunni fæst einungis skilað gegn framvísun kvittunar eða pöntunarnúmers.
Nánari upplýsingar um vöruskil má finna í skilmálum.
Láta mig vita þegar vara kemur
Playmo karl - lítill - Default Title