Lapuan Kankurit
LAKEUS ullarteppi - hvítt, grátt og kanilbrúnt
Ullarteppin frá finnska merkinu Lapuan Kankurit eru úr öðrum heimi! Þau eru einstaklega mjúk og notaleg og akkúrat sem þarf á haustkvöldum þegar við kúrum upp í sófa með fjölskyldunni.
LAKEUS teppið er innblásið af víðáttumiklu landslagi Austurbotns í Finnlandi, þar sem vefstofa Lapuan Kankurit er. Litirnir minna á víðan sjóndeildarhring og kyrrláta akra. Í teppinu er meðal annars ull af finnska sauðfjárkyninu, sem safnað er frá bæjum í innan við 400 km fjarlægð frá Lapua. Hönnuður er Elina Helenius.
Efni:
- 100% ull
Mál:
- 130 x 180 cm + kögur
Umhirða:
- Þvoið aðeins ef teppið er mjög óhreint – stundum dugir að viðra teppið.
- Handþvottur við hámark 30°C eða þurrhreinsun.
Framleitt í Finnlandi
Couldn't load pickup availability
Heimsending
Við sendum um land allt með Íslandspósti. Sendingarkostnaður fellur niður þegar pantað er yfir 20.000 kr.
Hægt er að sækja pantanir í verslun okkar í Neskaupstað.
Skilaréttur
Skilafrestur er 14 dagar. Vörunni fæst einungis skilað gegn framvísun kvittunar eða pöntunarnúmers.
Nánari upplýsingar um vöruskil má finna í skilmálum.
Láta mig vita þegar vara kemur
LAKEUS ullarteppi - hvítt, grátt og kanilbrúnt - Default Title