Björt verslun
Kross - hvítur, rauður og blár
Falleg krossaskreyting sem endurspeglar ást og virðingu við kveðjustund.
Hver kross er einstakt handverk. Hægt er að óska eftir ákveðnum blómum og litatónum og reynt er að verða að þeim óskum eins og unnt er.
Pantanir og afhending:
Til að tryggja vandaða og tímanlega afhendingu er best að panta skreytinguna með góðum fyrirvara, en að lágmarki fjórum dögum fyrir útför.
Innifalið í verðinu:
- Borði með áletrun
- Sending í Norðfjarðarkirkju
Ef óskað er eftir sendingu innan Fjarðabyggðar bætist sendingargjald við.
Við leggjum metnað í að skapa fallega og virðulega kveðju fyrir ástvini.
Hafðu samband til að leggja inn pöntun eða fá frekari upplýsingar.
Áletrun borða
Áletrun á borða má vera persónuleg og sniðin að þeim látna. Eftirfarandi er listi yfir algengar kveðjur:
- Kær kveðja
- Hinsta kveðja
- Ástarkveðja
- Saknaðarkveðja
- Minningin lifir
- Minning þín lifir
- Blessuð sé minning þín
- Þökkum þín ljúfu kynni
- Margs er að minnast, margs er að sakna
- Hvíl í friði
- Hvíl í Guðs friði
- Guð blessi þig og varðveiti
- Í nafni Krists við kveðjum þig
- Takk fyrir allt
- Með virðingu og þökk
Hafa samband