Salún

Handklæði Gárur - kóral - 60x100 cm

Almennt verð 4.550 kr
Útsöluverð 4.550 kr Almennt verð
Liquid error (snippets/price line 123): Computation results in '-Infinity' afsláttur Uppselt
VSK. innifalinn í verði

Gárur handklæði – innblásin af klassískri hönnun og íslenskri náttúru

Munstrið er innblásið af flæði vatnsins og þeim síbreytilegu formum sem myndast þegar yfirborðið gárar og brotnar. Litapallettan sækir kraft sinn í stórbrotna náttúru Fjallabaksleið, allt frá dempuðum jarðtónum til ríkulegra lita Brennisteinsöldu. Línan er Jacquard-ofin í Tyrklandi af sömu alúð og einkennir aðrar vörur Salún.

Handklæðin henta frábærlega í daglega notkun – hvort sem er í sund, ferðalög, gönguferðir eða á ströndina þar sem þau eru:

- Létt
- Rakadræg
- Þorna hratt
- Auðvelt að pakka

Stærð: 100 × 60 cm
Efni: 100% tyrknesk bómull

Handklæðin eru framleidd í Tyrklandi eftir aðferðum tyrkneskra Pestemal og Perskir handklæða, sem eiga rætur sínar í hinum aldagömlu Hammam baðsiðum Ottómanveldisins.

Perskir handklæðin (100 × 60 cm) eru að uppruna ætluð fyrir hárið, en Pestemal handklæðin (90 × 170 cm) eru hugsuð fyrir líkamann. Pestemal eru einnig tilvalin sem sjöl eða létt teppi og Perskir henta vel sem gestahandklæði eða viskastykki.


Til á lager

Heimsending

Við sendum um land allt með Íslandspósti. Sendingarkostnaður fellur niður þegar pantað er yfir 20.000 kr.

Hægt er að sækja pantanir í verslun okkar í Neskaupstað.

Skilaréttur

Skilafrestur er 14 dagar. Vörunni fæst einungis skilað gegn framvísun kvittunar eða pöntunarnúmers.

Nánari upplýsingar um vöruskil má finna í skilmálum.